Ég elska Almannatryggingakerfið á Íslandi!

27.janúar 2017 partur 2.

Auðvitað á ég ekkert að vera að þenja mig meira í dag en ég skrapp inn á mínar síður hjá Tryggingastofnun ríkisins rétt í þessu og get ekki hamið mig fyrir hamingju.

Nú er tilbúin tekjuáætlun fyrir árið 2017 og þar er gert ráð fyrir að Lífeyrissjóðs greiðslur mínar fari úr 146.000 í 151.914.

Þetta þýðir að gert er ráð fyrir þó nokkurri verðbólgu á árinu 2017, annars hefði áætlun um tekjur ekki hækkað svona mikið.

Svo er líka komin greiðsluáætlun fyrir árið 2017 inn á síðurnar mínar.

Mér finnst svo vænt um að sjá þetta allt saman á einum stað og það sparar mér alls konar leit. Alveg unaðslegt kerfi.

Jæja, ég á semsagt að fá frá Tryggingastofnun krónur 171.616 á mánuði fyrir skatt.

Ekki krónu í heimilisuppbót!

Auðvitað ekki, ég er hálfviti. Bý ein og ekki nóg með það, líka í útlöndum. Hvernig dettur mér í hug að ég eigi að fá heimilisuppbót þar sem ég vogaði mér að flytja til útlanda?

Engin orlofsuppbót og engin desember uppbót. Svakalega er þetta nú flott og svo einfalt að skilja þetta allt saman. Bara ein tala og búið!

Ég elska svona einfalt kerfi.

Auðvitað get ég breytt tekjuáætluninni í hverjum einasta mánuði ef mér dettur í hug.

Geri ég það þá leiðréttist allt aftur fyrir sig. Það er kerfið sem mér þykir svo flott.

Líklega væri réttast að breyta tekjuáætluninni núna, en ég nenni því ekki. Það verður ágætt að eiga inni hjá elsku dúllunni eftir eitt eða tvö ár eða hvenær svo sem þeir endurreikna allt saman.

Þetta er svoooo kúl!

Svo er ég líka svo ægilega glöð með að vita að þingmenn þurfa ekki að greiða skatta af sporslum sem eru pínulítið hærri á mánuði en það sem ég fæ í eftirlaun!

Er þetta ekki unaðslegt?

Ég bara spyr eins og hálfvitinn sem ég er og allir vita að ég stíg ekki í vitið.

Vitiði, ég er eitthvað að ergja mig yfir því að vera kölluð ellilífeyrisþegi!

Finnst það eitthvað svo gamalmannalegt eða svoleiðis.

Er ekki bara hægt að segja eftirlaunaþegi? Það er jú það sem ég er.

Ég er ung og falleg kona í toppformi og móðgast óggulítið þegar ég er kölluð gamalmenni! Skiljiði?

Það er flott að skíra mig gamalmenni þegar ég er orðin rúmliggjandi níutíu ára eða svo, en ekki núna, alls ekki núna.

Er ekki hægt að breyta þessu?

Til dæmis gæti Panamaprinsinn borið upp breytingartillögu við lög um almannatryggingar eða litli gulur gæti kannski gert það svo hans hátign slyppi.

Ég er bara að reyna að vera voða væn og hjálpleg þar sem ég er svo yfir mig hamingjusöm að sjá núna loksins hvað ég varð lítils virði þegar ég yfirgaf hið ylhýra ástkæra land.

Auðvitað væri lang hagstæðast fyrir þjóðarbúið að svona fólk eins og ég dræpist bara. Þá þyrfti ekkert að vera neitt kerfi fyrir ellismelli!

Þá væri þjóðfélagið bara með yngri en 40 ára.

Bíddu hvað er Panamaprinsinn ungur?

 Það þurfa kannski að vera 50 ára eða yngri svo hann sleppi inn.

Hulda Björnsdóttir

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband