Nýr forseti

22.janúar 2017

Ég gerði mér ferð inn á Facebook síðu forsetaembættisins á Íslandi. Þar sem ég bý erlendis er ég alla jafnan ekki að hlusta á fréttir eða lesa íslensk blöð.

Ég varð ótrúlega glöð þegar ég renndi í gegnum það sem hinn nýi forseti íslendinga skrifar. Mér finnst að þar skíni í gegn manngæska og lítillæti.

Það er ábyggilega auðvelt að gerast hrokagikkur þegar komið er í æðstu embætti þjóðar og sumir falla reyndar í þá gildru að tala niður til fólksins í landinu.

Nýi forsetinn á Íslandi tjáði sig um viðkvæmt mál sem ég nefni ekki hér því ég hef ekkert til málanna að leggja sem gæti hjálpað til þess að leysa það og held mig til hliðar.

Mér þóttu orð forsetans lýsa fallegum manni sem skilur bæði gleði og sorg og hagar orðum sínum af stakri gætni.

Úti í hinum stóra heimi er nýr forseti tekinn við völdum og ýmsir standa á öndinni.

Það er ekki í mínum verkahring að leggja dóm á nýjan forseta í landi þar sem ég er ekki einu sinni búsett í hvað þá að ég hafi þar ríkisfang.

Ég vona bara að allar góðar vættir varðveiti þjóðir heims og mannkynið allt og sjái til þess að við lifum af næstu framtíð.

Þegar ég var lítil stúlka var mér sagt að heimsendir mundi verða. Ég trúði þessu og hefur þetta fylgt mér alla hina löngu ævi mína sem hugsanlegur möguleiki.

Tæknin er orðin svo mikil og svo auðvelt að útrýma jörðinni að heimsendir gæti hugsanlega skollið yfir fyrirvaralaust.

Ég vona sannarlega að svo verði ekki og ég vona að allir nýir ráðamenn í heiminum kunni sér hóf og hafi manngæsku að leiðarljósi fyrir alla.

Hulda Björnsdóttir

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband