29.12.2016 | 09:40
Kæru alþingismenn! Égt sendi ykkur tón!
Þá er nýtt ár að ganga í garð og vil ég senda öllum alþingismönnum tóninn!
Ég er ekki par hrifin af gjörðum ykkar þessa síðustu mánuði, hvað þá síðasta ár.
Ég hef hlustað á ykkur telja kjósendum trú um að þið séuð að vinna fyrir þá.
Ég hef hlustað á ykkur dásama ykkar flokka og segja okkur að ykkar flokkur sé sá sem hugsar um almenna borgara landsins fagra.
Ég heyrt ykkur segja að þeir sem eru á sveit þurfi að herða sultarólina, en samt þurfi kannski að hjálpa þessu dóti aðeins.
Ég hef heyrt ykkur opinbera vanþekkingu ykkar og heimsku með því að tala um fólk verandi á sveit ef það er komið á ákveðinn aldur og fær lífeyri!
Ég hef heyrt og séð ykkur byrsta ykkur við kjósendur og segja að vera nú rólegir og hlusta á hvað góðærið sé mikið.
Ég hef hlustað og heyrt ykkur segja að þið séuð vel að launum ykkar komin.
Ég hef séð ykkur greiða atkvæði á alþingi um kjör eldri borgara og öryrkja.
Ég hef heyrt ykkur dásama veröld þeirra sem greiða 80 prósent af tekjum sínum í skatt og skerðingar þegar þeir eru komnir yfir 67 ára.
Ég hef séð nýja tekjuáætlun mína frá Tryggingastofnun þar sem ég fæ örlitla hækkun á sama tíma og þeir sem aldrei hafa greitt í lífeyrissjóð njóta svo til sömu kjara.
Ég hef skilið, loksins, að löghlýðni er ekki neitt sem þið virðið.
Ég hef alla mína tíð greitt í hítina skatta og ég hef sparað til efri ára með því að greiða í lífeyrissjóð.
Ég gerði ráðstafanir löngu áður en ég varð 67 ára til þess að þurfa ekki að lepja dauðann úr skel á Íslandi. Ég er ein af hinum lánsömu!
Nú sé ég að auðvitað átti ég að svíkja undan skatti og alls ekki að borga í lífeyrissjóðinn.
Það er kæru alþingismenn ekkert vit í því að vera löghlýðinn borgari á meðan þið hafið ekki vit til að skoða ný lög til enda og sjá afleiðingarnar.
Það er ykkur kæru alþingismenn til ævarandi skammar að þiggja himinhá laun, á meðan eldri borgara svipta sig lífi vegna örbirgðar í vel auðugu þjóðfélagi.
Ég hef horft á ykkur undanfarið eftir kosningar leika leikrit sem hefur verið leikið á áratugi.
Ég hef hlustað á ykkur segja að nú sé stjórn að myndast og svo kennir hver öðrum um að ekki tókst að koma saman ráðherrastólunum!
Ef þið kæru alþingismenn haldið að ég trúi einu orði sem þið segið þá hugsið ykkur betur um.
Þið hafið logið að þjóðinni, skarað að eigin köku, látið bótaþega eta það sem úti frýs, gefið skít í spítala og heilsugæslu ásamt menntakerfi þjóðarinnar.
Kæru alþingismenn, nú þætti mér vænt um að hver og einn svaraði fyrir sig fyrir hverja þið haldið að þið séuð að vinna?
Líklega haldið þið að vinnan ykkar, ef þið mætið, sé fyrir ykkar eigin ego þó þið að sjálfsögðu segið það ekki upphátt.
Nú á að kjósa mann ársins á Íslandi og eru nokkrir pólitíkusar í topp 10 sætunum.
Hvað er að þjóð sem ætlar að kjósa svikara og eiginhagsmuna seggi sem bestu menn ársins?
Það er eitthvað mikið að í slíku landi og óvíst hvort annað hrun breyti nokkru um hugmyndir þjóðarinnar.
Líklega kýs blessuð íslenska þjóðin aftur sama liðið, liðið sem er á heljar brúninni og rétt að ná því að keyra landið í annað gjaldþrot með dugleysi sínu og aumingjahætti.
Ég óska landsmönnum þess að þeir opni augun á nýju ári og kjósi EKKERT af þessu ágæta fólki sem nú situr á þingi og leyfir ólögum að renna í gegn óskoðuðum bara til að komast í langt jólafrí og njóta nýju launanna sem hafa verið greidd inn á reikninga þeirra.
Guð hjálpi Íslandi þegar það rennur hratt og örugglega til glötunar!
Hulda Björnsdóttir
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.