28.12.2016 | 10:16
Hvað veldur því að ég er "verðfelld" við það eitt að flytja úr landi?
Nú er hin dásamlega Tryggingastofnun búin að setja inn á mínar síður greiðsluáætlun fyrir árið 2017 og þar sé ég svart á hvítu hve hár lífeyrir minn verður.
Árið 2016 fékk ég 120.172 krónur á mánuði
nú árið 2017 fæ ég 171.616 krónur á mánuði
Ég bý ekki á Íslandi og fæ því ekki heimilisuppbót sem ég fengi byggi ég á landinu ylhýra.
Við það eitt að flytja úr landi og með því spara ríki og sveitarfélagi stórfé í heilbrigðisþjónustu er ég sett niður, ég er verðfelld.
Þetta kom mér ekki á óvart, en eru samt vonbrigði.
Stór orð hafa fallið út úr munni Bjarna Ben og fleiri um að nú ætti að jafna kjör og allir ættu að geta lifað af lífeyri sínum.
Bjarni Ben varð ljótur í framan á stóra fundinum í Háskólabíói þegar hann var að réttlæti gerðir sínar og hann fussaði yfir frekju lífeyrisþega.
Hann verður kannski næsti forsætisráðherra á Íslandi.
Er ekki lífið dásamlegt?
Ef þið hugleiðið að flytja úr landi kæru lífeyrisþegar, til þess að geta haft í matinn ráðlegg ég ykkur að fara vel yfir hvað breytist í mati á ykkur sem einstaklingum.
Það er betra og ódýrara að búa erlendis í ódýru landi og láta hinar skammarlegu bætur endast út mánuðinn en óneitanlega sárnar mér þegar ég sé að enn einu sinni hef ég verið verðfelld.
Einhver spurði hvort tryggingastofnun væri vísvitandi að reikna vitlaust út og klekkja á fólki?
Ég er ekki vön að halda uppi vörnum fyrir stofnunina en ég er smátt og smátt að komast á þá skoðun að kerfið sem starfsmönnum er ætlað að vinna eftir sé svo flókið að það þurfi meira en meðal gáfur til þess að botna í því.
Mér var gert að endurgreiða nokkuð háa upphæð og bað um skýringar, nákvæmar skýringar á því hvernig þessi skuld væri til komin.
Ég fékk bréf eftir langan tíma með útskýringum sem hefðu hæft smákrakka. Það var ekki heil brú í skýringunum og þó ég legði mig alla fram ákvað ég að vera ekkert að ónáða meira og borga bara.
Það getur stundum verið til að æra óstöðugan að reyna að hafa samskipti við blessaða stofnunina en þó eru innan um einstaklingar sem vita hvernig á að vinna.
Getur það verið að laun starfsfólk TR séu svo lág að ekki fáist hæft fólk til þess að lesa úr flóknum flækjum sem hið háa alþingi setur og aumingjans alþingismennirnir skilja ekki sjálfir?
Ég á eftir að fá endanlega greiðsluáætlun fyrir árið 2017, hún kemur seinni hluta Janúar 2017.
Til yngri kynslóðarinnar sem nú er að safna í lífeyrissjóð samkvæmt gildandi lögum hef ég þetta ráð:
Hættið að greiða í lífeyrissjóð. Leggið fyrir á einkareikning eða safnið undir koddann.
Greiðsla í Lífeyrissjóð er tapað fé og ekkert annað. Þegar til á að taka eftir 67 ára aldur hefur sparnaðurinn brunnið upp og það litla sem verður eftir af honum hirðir ríkið í skerðingum og sköttum.
Það borgar sig að hafa aldrei greitt í Lífeyrissjóð!
Trúið þið þessu?
Þetta er svo lygilegt en því miður satt.
Ég hrópa húrra fyrir alþingismönnum sem hafa tryggt sig og sína og þurfa aldrei að velta fyrir sér einni krónu. Guð blessi þá alla og gefi þeim gleði og glaum á nýju ári.
Hulda Björnsdóttir
Athugasemdir
Samála, það á engin að greiða í þessa andskotans lífeyrissjóði sem eru ekki handa þeim sem í þá greiða, heldur eru þeir handa stjórnendum þeirra og starfsmönnum og ríkið stelur svo því sem afgangs er.
Það var logið að okkur ungum og við plötuð til þess stóran hluta ævinnar að borga í þessa hýt, sem svo skilar því að við fáum sem svarar 20.000 kr. meira en maður sem alltaf vann svart og aldrei borgaði í lífeyrissjóð.
En við sköpuðum vellaunaða vinnu handa fólki sem sínir okkur hroka þegar spurt er um það hvað verði um afganginn.
Hrólfur Þ Hraundal, 28.12.2016 kl. 23:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.