23.12.2016 | 12:00
Alþingismenn og jólamatur!
Þá eru jólin að koma. Þau koma annað kvöld.
Alþingismenn komnir í jólafrí og geta sest niður og gætt sér á dýrindis steikum og alls konar góðgæti.
Það er gott að blessaðir þingmennirnir geti hvílt sig yfir jólin og fram á næsta ár. Þeir eru áreiðanlega þreyttir eftir að leika hið mikla sjónarspil sem verið hefur síðan kosningar voru fyrir stuttu .
Komið hefur í ljós að hinir tryggu kjósendur spillingar og valdagræðgi eru af eldri kynslóðinni.
Þetta kemur á óvart, eða kannski ekki.
Eru bara örfáir aumingjar að kvarta yfir því að hafa ekki nægilegan lífeyri til þess að geta haft sæmilegan mat á jólahátíðinni?
Eru þeir sem skrifa um mannréttindabrot á eftirlaunaþegum og öryrkjum bara að bulla?
Það mætti halda það ef litið er á hverjir fara helst á kjörstað.
Á ég að trúa því að svona sé í pottinn búið eða er yngra fólkið einfaldlega upptekið af harðri lífsbaráttunni og sér ekki fram á að atkvæði þeirra breyti nokkrum sköpuðum hlut?
Hvað með einstæðu foreldrana? Eru þeir allir sælir með sitt?
Er kvíði fyrir því að eiga ekki fyrir jólagjöfum handa börnunum bara í sögunum?
Er kvíðakastið sem stóð í heilan mánuð vegna þess að ekki var hægt að hafa sæmilegan mat á borðum yfir hátíðarnar hjá barnafjölskyldum bara liðin tíð?
Hvað með heimilislausa fólkið sem fékk jólamatinn á herkastalanum? Er það fólk allt komið í hús og hefur eldhús og nægan mat til að elda þar?
Hvað með öryrkjana sem ekki áttu fyrir lyfjum eða lækniskostnaði? Eru þeir líka horfnir?
Er allt skyndilega orðið svo gott af því að búið er að keyra í gegn um alþingi lög og ólög sem hægt verður að dunda við að lappa upp á eftir áramótin þegar þingheimur hefur gætt sér á dýrindis steikum og fögrum vínum?
Hvert duttu fallegu loforðin fyrir kosningar? Hvar eru þau? Er ekki hægt að grafa þau upp?
Ó fyrirgefið. það er óþarfi að vera að grafa eitt eða neitt upp. Bara gleyma því sem var sagt fyrir kosningar og ekki vera að ybba sig neitt.
Allir hafa það svo gott.
Þið sem eruð alltaf endalaust að kvarta ættuð bara að fara í mat hjá einhverjum þingmanna. Þeir eiga næga peninga og enginn skortur á mat og þið eruð ábyggilega velkomin til þeirra um jólin.
Alþingismenn eru nefnilega allir hinir mestu heiðursmenn sem efna öll sín loforð. Það er almenningur sem er ekki alveg í lagi. Þessi almenningur sem endalaust kvartar og kveinar og skilur ekki hina ógurlega miklu vinnu sem liggur að baki því að passa upp á vini og vandamenn þeirra sem sitja við kjötkatlana.
Hvað er eiginlega að ykkur öryrkjar og eftirlaunaþegar? Hættiði að kvarta. Það eru mannréttindabrot að vera endalaust að væna kjörna fulltrúa um gleymsku, hvað þá svik!
Ef þið, þetta gamla fólk haldið áfram að rífa ykkur eru hæg heimatökin og breyta nýju lögunum og sjá til þess að þið fáið ekki neitt eftir áramót.
Það er nefnilega þannig að þó brotin séu mannréttindi á þessum hópi fólks er ekki hægt að fá það staðfest. Enginn dómstóll mundi staðfesta það og Evrópu er alveg sama um nokkrar hræður við norður pólinn.
Best er að hætta að hrópa um mannréttindabrot. Það er hróp í eyðimörkinni sem enginn heyrir.
Best að vera bara sæll með það sem hent er í gamlingjana. Þeir eru hvort sem er rétt um það bil að fara yfirum. Ekki eftir nema kannski 20 eða 30 ár og auðvitað best að sjá til þess að þetta fólk sé ekki mikið að flækjast fyrir hinum yngri sem eiga jú að hafa það gott og erfa landið.
Ég er ekki einu sinni reið. Ég er lömuð af skelfingu. Ég á vini á Íslandi sem eiga ekki fyrir mat. Hvað verður um þessa vini mína? Hvernig verður þessi vika sem eftir er af árinu hjá þeim? Hvað verða margir þeirra enn á meðal okkar í febrúar?
Ég bara spyr en fæ auðvitað engin svör, þetta er eins og að hrópa í eyðimörkinni og biðja um vatn að drekka.
Alþingismenn, njótið stundanna sem þið eigið þar til næsta þing kemur saman og verið ekkert að hafa áhyggjur af eða hugsa um smælingjana. Þeir eru bara kross á kjörseðli og sumir fá kross á leiði þegar þeir hafa geispað golunni.
Lifi hræsnin og gleymdu loforðin um aldur og æfi!
Hulda Björnsdóttir
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.