17.12.2016 | 11:39
Ég skrifa fyrir mig en þú mátt alveg njóta þess með mér!
Er það ekki skemmtilegt að geta skrifað fyrir sjálfan sig og notið eigin gáfna og skemmtilegheita?
Mér finnst það.
Þegar ég tengdist Facebook fyrir ekki svo löngu gerði ég það til þess að vita hvort mér væri sama um skrítnar athugasemdir fólks sem læsi skrif mín.
Góð vinkona mín á Íslandi sagði við mig fyrir óralöngu að um leið og skrif færu frá mér breyttist meining þeirra og lesandinn tæki að túlka á sinn hátt.
Þetta er svo hárrétt og ég tek það ekki nærri mér. Hins vegar skemmti ég mér stundum við skondnar fullyrðingar þeirra sem sjá ástæðu til þess að ráðleggja höfundinum, þó það sé reyndar orðið allt of seint, og ráðleggingarnar dálítið út úr kú.
Ég tala eiginlega aldrei íslensku og eina ráð mitt til þess að halda kunnáttunni við og blanda ekki of miklu af öðrum málum sem ég kann samanvið var að prufa mig áfram með íslenskt blogg.
Allar athugasemdir eru andskotalausar af minni hálfu svo framarlega sem þær eru undir nafni. Ég þoli ekki aumingjahátt sem birtist í nafnlausum árásum og finnst þær segja allt sem segja þarf um þann sem setur þær fram.
Ég kann ekkert sérstaklega mikið á stjórn birtingar hins og þessa sem bloggið hér býður upp á og nenni eiginlega ekki að setja mig inn í það. Ég fann uppáhalds ávextina mína, tómata, til þess að hafa í mynd og það er eiginlega alveg nóg fyrir mig.
Auðvitað væri kúl að setja nokkrar myndir með einhverjum frásögnum og getur meira en verið að ég finni út hvernig það er gert. Í bili nægir mér að skrifa til þess að skemmta mér og er nokk sama hvort einhver les eða ekki. Andinn minn nærist og það er frábært.
Ég er ekki neinn spekingur sem þarf að koma skoðun minni á framfæri!
Ha, bíddu nú aðeins við.
Þegar komið er að kjörum eldriborgara á Íslandi verð ég spekingsleg og þykist hafa eitthvað að segja, eitthvað sem allir ættu að lesa og hugsa um!
Þó ég sé með nokkur ár í pokahorninu er ég í allt annarri aðstöðu en þeir sem berjast í bökkum á landi gulls og gersema þar sem ríkir blómstra og fátækir svelta.
Ég flutti frá landinu löngu áður en ég fór á eftirlaun og kom mér vel fyrir þar sem nægur matur er alltaf á borðum. Ég ákvað einfaldlega að verða ekki gömul á Íslandi og ég framkvæmdi!
Einhverjir áfellast mig fyrir gjörninginn og það er þeirra mál. Að lifa lífinu í gegnum aðra, hjakkandi í sama hjólfarinu ár eftir ár án þess að eiga möguleika á að sjá upp fyrir brúnir farsins hentar sumum. Mér leiðast hjólför.
Ég á ekki ráð fyrir þá sem hafa það hræðilegt á Íslandi þegar þeir eru komnir yfir ákveðinn aldur. Ef ég ætti það væri ég löngu búin að setja það fram en mér svíður að vita til þess að fólk fari svangt í rúmið og sjái ekki fram á að geta búið í sómasamlegu húsnæði eða haft hlýtt inni hjá sér.
Á sama tíma og peningar vella eins og hraunstraumur til þeirra sem eru ríkir á landinu skammta þessir sömu herrar og frúr sumum svo naumlega að það er hvorki hægt að lifa eða deyja af lúsinni. Á sama tíma eru fluttir inn útlendingar og þeim útvegað húsnæði, fæði og guð má vita hvað. Er eitthvað réttlæti í þessu?
Hvers vegna gætir ekki alþingi bróður síns? Þar er valdið.
Hvers vegna sjá alþingismenn ekki um að allir, já ég segi ALLIR á landinu njóti lágmarks mannréttinda og geti að minnsta kosti borðað mat í öll mál?
Stundum finnst mér að verið sé að murka lífið úr fátæka fólkinu á Íslandi, hægt og rólega en markvisst. Það er jú ein leið til þess að losna við gamlingjana en líklega ekki sú mannúðlegasta.
Vonandi breytist allt til batnaðar á nýju ári. Nýir þingmenn sjá að sér og rífa sig upp úr loforða gleymskunni og framkvæma fallegu fyrirheitin sem þeir suðu saman til þess að fá rétta krossa á kjörseðilinn.
Vonandi verða ekki settir upp fleiri leiðiskrossar á nýju ári þar sem hinn látni dó úr hungri.
Og svo rétt í lokin: Hvað var biskupinn að gera fyrst hún gat ekki skrifað nema 2 blaðsíður? Voru þessar 2 eitthvað sérstaklega merkilegar? Ég færi létt með að hripa niður 5 síður eða svo á no time og alveg til í að gera það fyrir milljón. Ég þarf að komast í svona verkefni, ekki spurning.
Hulda Björnsdóttir
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.