Samstaða er góð en sumum finnst hún óþægileg !

18.júlí 2017

Þögn!

Íslendingar sýndu á laugardaginn að það eru til einstaklingar sem láta sig líf annarra skipta.

Tæplega fullt Háskólabíó sannaði það.

Af hverju ríkir þögn um atburðinn?

Ó,

ég skil

það er ekki rétti stjórnmálaflokkurinn sem tók af skarið og boðaði til fundarins

miklu betra að skrifa um hvað VERÐI að gera fyrir eldri borgara og öryrkja og þegja þunnu, eða þykku hljóði, um það sem fram fór á laugardaginn á sumarþinginu.

Hroki og eigingirni ? eða er þetta kannski afbrýðisemi ?

Ótti við að tapa atkvæðum? Getur það verið ?

Bjartsýnisfólk sem lætur ekki sitt eftir liggja til þess að vekja athygli á góðum málstað er ekki hlekkjað við flokk.

Bjartsýnisfólk berst fyrir réttlæti.

Heimtufrekjur hamast og telja upp allt sem vonda fólkið hefur gert en kemur aldrei með lausnir. ALDREI.

Langar flottar yfirlýsingar á Facebook síðum sem þarf að þýða fyrir erlenda blaðamenn og auglýsing eftir húsnæði fyrir blaðamennina sem eru að koma til þess að fjalla um stöðu Íslands í dag eru mikilvægar. Ég skil það.

Ég skil hins vegar ekki hvers vegna ekki er minnst EINU ORÐI á hinn stórmerka fund á hinni ágætu Facebook síðu.

Jú, kannski skil ég það. Það var vitlaus stjórnmálaflokkur sem stóð fyrir þinginu.

DJISUS

Þögn er flott.

Þögn er hlutlaus.

Þögn er máttlaus.

Þögn er ægileg.

Þögn sýnir vilja þeirra sem þegja svo ekki verður um villst.

Þeir sem njóta sín nú í þögninni baða sig upp úr einhverju sem ég skil ekki.

Smátt og smátt eru þaggararnir að vakna og draumurinn er ekki góður.

Þeir misstu af einhverju merkilegu og eiga ekki afturkvæmt.

Nú klóra þeir í bakkann og kannski komast þeir ekki upp á þurrt land.

Mikið væri það nú sorglegt ef einhver af ráðamönnum þjóðarinnar fengi málið og skellti sér upp úr meðaltölum yfir í raunveruleika.

Það væri hneyksli aldarinnar, svo ekki sé meira sagt.

Hulda Björnsdóttir

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heirðu, hvaða fjandans fund ertu að tala um? Hvernig væri að skýra þetta fyrir okkur hina, sem erum langt úti í ballarhafi ...

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 18.7.2017 kl. 18:46

2 Smámynd: Hulda Björnsdóttir

Sæll Bjarne

Þið sem eruð úti í ballarhafi eruð líklega sjómennirnir sem í mínum huga eruð hetjur hafsins og verðið aldrei annað en hetjur.

Ég er að tala um fundinn sem var í Háskólabíói á laugardaginn 15.júlí árið 2017 klukkan 14.

Þar kom fólk saman til þess að mótmæla framkomu stjórnvalda við þá sem minna mega sín í þjóðfélaginu og var bíóið næstum því fullt. Þetta er merkur viðburður um hásumarið þegar margir þeysast um fjöll og firnindi í leit að sumrinu.

Fjölmiðlar sáu ekki ástæðu til þess að sýna þessum fundi áhuga. Kattholt var mikilvægara hjá RUV.

Það voru fleiri sem hafa talað flott um hvernig allt er svo dásamlegt á landinu sem létu viðburðinn fram hjá sér fara.

Ef þú lest eldri blogg mín þá gætir þú fengið frekari skýringu.

Að komast ekki upp á þurrt land og klóra í bakkann eru orðatiltæki sem hafa verið í íslensku máli frá örófi alda og hafa ekkert með sjómenn að gera.

Ég þakka þér Bjarne fyrir athugasemdina og óska þér alls hins besta í allri framtíð.

Hulda Björnsdóttir

Hulda Björnsdóttir, 20.7.2017 kl. 10:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband