Heilsugæsla á Íslandi í molum ?

6.maí 2017

Í gær sat ég á biðstofu spítalans hér í Coimbra og beið eftir hjartalækninum mínum. Við áttum bókaðan fund klukkan 2 en það tók eins og oft áður lengri tíma að fá viðtalið.

Viðtekin venja hér í landi er að sjúklingur bíði að minnsta kosti hálfa klukkustund eftir lækni sínum ef viðtalið á að fara fram á spítalanum. Þetta vita allir og sætta sig.

Svona bið gefur manni færi á að hugleiða eitt og annað. Veðrið var skítt, rennandi rigningin og þrumur buldu á gluggum og þegar ég labbaði frá bílastæðinu og niður eftir, um það bil 15 mínútna göngu, varð ég holdvot í lappirnar.

Á meðan ég beið eftir hinum fjallmyndarlega dr. Pedró, sem ég var reyndar hálf hrædd við þegar ég hitti hann fyrst, hugleiddi ég hvað ég nýt mikilla forréttinda hér í nýja heimalandinu mínu.

Stúlkan í afgreiðslunni spurði mig hvort ég væri með Carto do Cidadao sem ég er ekki með. Ég hef bara 10 ára residence kort en það gerir ekki sama gagn og því var búið til leyniorð á skrána mína. Ég var spurð um nafn foreldra minna. Það er nú ekki tekið út með sældinni að skilja íslensk nöfn svo sú portúgalska bað mig að skrifa þau niður, sem ég gerði auðvitað.

Svo var tekið hjartalínurit og konurnar í þeirri deild pössuðu sig á því að segja að allt væri í góðu lagi sem það auðvitað er ekki en þær leggja sig fram um að hræða ekki svona útlenda sjúklinga. Þær spyrja í hvert sinn sem ég kem hvaðan ég sé og besta útskýringin mín er að tala um saltfiskinn og þá er þetta smollið saman.

Nú vildu þær líka fá að vita hvað ég væri gömul og þurfti ég aðeins að hugsa mig um. Ég er ekkert að velta mér upp úr einhverjum árum. Ég hef bara nokkur í pokahorninu en við svona aðstæður rifja ég þetta að sjálfsögðu upp og var ekki alveg viss því ég á afmæli í maí. Það datt þó inn í kollinn á mér að afmælið væri ekki liðið svo ég hlyti að vera jafn gömul og ég var í fyrra.

Auðvitað gætu konurnar bara reiknað þetta út. Það kemur jú fram fæðingarár og alles á skýrslunni sem þær halda á. Segi bara svona.

Jæja, eftir línuritið var ekkert annað að gera en sitja og bíða. Mér finnst svo gaman að virða fyrir mér fólkið sem bíður á svona stofum. Það eru alltaf tveir, að minnsta kosti, saman. Aldrei bara einn, nema auðvitað útlendingurinn ég. Mér dettur ekki í hug að biðja einhverja vini mína að taka sér frí frá störfum til þess að bíða með mér á biðstofu. Ég ætti nú ekki annað eftir.

Þarna var gamalt fólk og ungt fólk. Inn kom par, líklega hjón, hann í flottum jakkafötum og gljáandi skóm. Hún í frekar druslulegum fötum, bara svona venjulegum og ekkert gljáfægt við hana. Hann bar bunka af blöðum undir hendinni. Þau settust rétt hjá mér, hann fleygði í hana einu tímariti sem fylgdi með blöðunum og tók svo sjálfur að fletta dótinu. Sleikti á sér fingurinn áður en hann fletti. Eins gott að þetta voru ekki sameignarblöð fyrir alla. Jæja, þegar hann var búinn að lesa í gegn um bunkann tók hann blaðið af frúnni og fór í gegnum það og bætti því svo við bunkann. Ekki bauð hann frúnni að skoða þau sem hann hafði flett. Nei, þetta er hið dæmigerða karlaveldi þar sem konur geta bara setið við hlið manna sinna og haft sig hægar. Þegar kallinn var búinn að lesa var óhætt að líta á sjónvarpið og sátu nú bæði og störðu á skjáinn.

Svo komu inn tveir menn, annar gamall, hávaxinn og grannur, hinn hávaxinn og 3svar sinnum breiðari kolsvartur og ofboðslega ólíkur þeim gamla. Sá svarti var í skóm með mjóum tám, og gljáandi lakki. Ofboðslega stórum skóm en líklega hafa lappirnar innan í þeim ekki verið svo ýkja langar. Gaurinn starði á leikjatölvuna sína í rúman klukkutíma en þá var þeim gamla orðið kalt og þeir færðu sig.

Dr. Pedró kom nokkrum sinnum í gættina og kallaði á sjúkling, eiginlega mörgum sinnum og á endanum var það ég.

Hann er svo mikill engill þessi frábæri skurðlæknir. Ég lét hann hafa holterinn og fullt af einhverjum rannsóknum sem ég hafði farið í síðan við hittumst síðast. Svo sagði ég honum að ég hefði dottið heima hjá mér og brotið á mér öxlina. Hann var nú ekki hrifinn þegar ég sagðist hafa þurft 2 einingar af blóði en gat auðvitað flett öllu upp í tölvunni hjá sér og sá að þetta var svo sem ekkert til þess að hafa miklar áhyggjur af.

Eftir að hafa farið yfir þessa mánuði og kynnt sér málið sat hann alvarlegur fyrir framan mig og spurði hvort ég vildi að hann gerði aðgerðina núna. Hann útskýrði sko fyrir mér síðast hvað var að og hvað væri hægt að gera svo ég vissi hvað hann var að tala um, skiljiði. Ég bað um frest og hann sagði:

Á meðan þú funkerar og fellur ekki í yfirlið og getur sinnt lífinu sæmilega getur þú komist hjá aðgerðinni en um leið og það fer að líða yfir þig þá verður þú að koma. Þú veist að þú getur komið hingað hvenær sem þú þarft og þegar þú ert tilbúin veistu að ég er hér til þess að hjálpa þér.

Er þetta ekki dásamlegt?

Svona framkoma læknis við sjúkling er svo frábær að ég get ekki varist því að hugleiða hvort í íslenskum niðurskurði á heilbrigðiskerfi hefðu læknar tíma og getu til þess að tala svona við sjúklinga sína.

Getur það verið að í niðurskurðar samfélaginu Íslandi, sé verið að vonast til þess að sem fæstir sæki hina opinberu heilsugæslu af því það er ekkert á henni að græða?

Ég er auðvitað að tala um ráðamenn á Íslandi, ekki læknastéttina. Ég efast ekki um ágæti flestra lækna þar í landi. Aðstæður þeirra geta hins vegar verið þannig, vegna aðgerða stjórnvalda að þeir hafi ekki þrek eða getu til þess að meðhöndla sjúklinga sína eins og Dr. Pedro gerir við mig.

Ég er að tala hér um framkomu læknis, og lækna sem hafa annast mig á opinberum spítala í landi sem er ekki vaðandi í peningum og velferð.

Það er eitthvað mikið að þegar gróðasjónarmið ríkisstjórnar íslands eru að drepa heilsugæsluna.

Íslensk stjórnvöld mættu gjarnan líta á hvernig búið er að sjúklingum í frekar fátæku landi og hvort sá samanburður standist nútímakröfur. Þau mættu líka alveg skoða aðbúnað almennings á Íslandi í ljósi hinnar gífurlegu auðsöfnunar hjá eina prósentinu sem yfir öllu gín.

Hulda Björnsdóttir

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Hulda. Takk fyrir þarfan og góðan pistil.

Ísland er að mínu mati algerlega stjórnlaust og siðlaust þegar kemur að heilbrigðisyfirvaldsins óverjandi græðgiyfirlækna ákvörðunum. Ákvörðunum og framkvæmdum í dulbúinni samvinnu við suma skóla. Allt þetta er þöggunarfóðrað í laumupúka-einkavæðingu, sem hið opinbera kerfi fær ekki aðgang að. En skattgreiðendur skulu borga fyrir spillingarþróunina, sama hvaða afleiðingar það hefur?

Sjúkratryggingar Íslands og Tryggingarstofnun ríkisins Íslands eru meðsekar stofnanir í þessari glæpaviðskiptaþróun heilbrigðiskerfisins á Íslandi. En það er ekki víst að þeir viti hvaða þróun þeir stjórar eru að taka þátt í á heimsvísu. Það er óhugnanlegt.

Enginn kjörinn fulltrúi getur varist hótandi, kúgandi og sprautuhótandi og misnotandi valdníðsluyfirlækna-þjónum spillts peningaglæparíkisins.

Það ættu allir að hugleiða þá staðreynd, og hugleiða líka hvert svona valdakúganir leiða almenning allra ríkja heimsins.

Gott að til eru siðmenntaðir og góðir læknar í hinum stóra heimi, sem ekki hafa það að aðal leiðarljósi sínu að græða sem mest á hverjum sjúklingi, heldur lækna það sem hægt er að lækna á heiðarlegan hátt.

Ísland er á mjög hættulegri braut hvað varðar menntun um líffærasmíðar og tækni í því sambandi. Í Háskóla Reykjavíkur er kennt hvernig líkamshlutar eru framleiddir og notaðir.

Vélmennin koma ekki utan úr geimnum sem geimverur frá öðrum reikistjörnum eins og logið hefur verið að heimsbúum, heldur koma þau frá innsta kjarna glæpsamlega Háskólamenntakerfisins vélmennavæðandi.

Ég fór eitt sinn á kynningarfund í Háskóla Reykjavíkur fyrir nokkrum árum síðan, og sá kynningu á parti af þessari gervilíffæra smíðaþróun.

Eftir því sem árin og þróunarferlið verður upplýstara, þá átta ég mig betur á hvers vegna mér fannst ég verða að fara á þessa auglýstu kynningu. Og átta mig nú á hvert er stefnt í vélmennavæðingunni hættulegu, eftir að hafa nýlega fylgst með kynningum á erlendum vefmiðlum eins og t.d. youtube kynningu frá USA.

Þetta er óhugnanleg þróun á Íslandi og víðar í heiminum, svo ekki sé sterkar að orði kveðið.

Guðsviskunnar almættis gullorkan algóða og alvitra forði mannskepnum jarðarinnar frá þessari jarðar tortímandi villiskepnu-tækniþróun.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 6.5.2017 kl. 20:37

2 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Ég ættla að hjálpa þér við spurninguna "Heilsugæsla á Íslandi í molum?" Svarið er einfallt, "JÁ" 

þetta var ekkert að byrja í gær eða fyrradag, þetta byrjaði þegar ríkið tók sjúkrasamlagssjóðina og eyddi þeim í gæluverkefni.

Kveðja frá Las Vegas

Jóhann Kristinsson, 8.5.2017 kl. 21:57

3 Smámynd: Hulda Björnsdóttir

Sæll Jóhann.

Nei það er rétt, þetta byrjaði ekki í gær eða fyrradag. Kerfið hefur smátt og smátt verið að molna niður innan frá í þágu  eiginhagsmuna potara.

Kveðja frá Penela

Hulda Björnsdóttir, 12.5.2017 kl. 09:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband